Hæ systrasamfélag,
Það er okkur svo mikil ánægja að bjóða þig velkomna á INSPIRE! Sumar hafa ferðast með lestum, flugvélum, rútum, bílum; sumar hafa komið langt að en aðrar eru heimamenn! Hvað svo sem á við um þig, þá erum við SVO ÁNÆGÐAR að hafa þig með okkur og við vitum að við eigum eftir að eiga frábæran tíma saman.
Við búumst við mörgum augnablikum frá Guði sem við vitum að munu styrkja andlega göngu þína. Okkur þykir líka mikilvægt að hafa bænaherbergi opið fyrir þig yfir helgina. Þar eru bænateymi til staðar sem eru tilbúnar að biðja með þér næstu tvo dagana.
En að sjálfsögðu hvað myndi INSPIRE vera án mikils hláturs! Við vonum að þú finnið gleði í því að vera saman. Vertu vakandi fyrir því ef þú sérð einhverja eina og taktu þér tíma í að fjárfesta í nýrri vináttu. Við viljum líka hvetja þig til að koma við í búðinni og nytjaversluninni (við erum viss um að þér muni líka vel við þær).
Það er von okkar að áður en þú ferð að þú vitir hversu stórkostleg þú ert. Í alvöru ÞÚ ERT ÞAÐ!
Vinsamlegast láttu teymið okkar vita ef við getum þjónað þér á einhvern máta.
Fyrir næstu stúlku!


Á hverjum INSPIRE viðburði eru sérstakar stundir fyrir bæn og persónulega íhugun. Ef þig vantar einhvern til að tala við, eða hefur spurningar um trú eða vilt fyrirbæn, komdu þá við í
Það er opið alla INSPIRE helgina og þar er alltaf einhver tilbúin að taka á móti þér og biðja fyrir þér.


Dagskrá
Föstudagur
18:00 – Mæting og skráning
19:00 – Opnunarstund
20:30 – Eftirpartý
Laugardagur
09:00 – Mæting og systra stund
(Kaffi, búðin og bænaherbergi opið)
10:00 – Stund tvö
11:30 – Teygju hlé
12:00 – Stund þrjú
13:00 – Hádegismatur
14:30 – Lokastund
16:00 – Ráðstefnulok
Hefur þú ákveðið að fylgja Jesú?
Segðu okkur frá!
Að fylgja Jesú er besta ákvörðun sem þú getur tekið. Það breytir öllu!
EstVið erum svo spenntar að vera hluti af þessu frábæra augnabliki í lífi þínu og viljum gera allt sem við getum gert til að tengja þig við kirkju og hjálpa þér á þessari vegferð.
Smelltu á hlekkinn hér að neðan og láttu okkur vita.

Góðu fréttir fagnaðarerindisins enda ekki með okkur, við trúum að það er fyrir þá næstu. Og þá næstu. Og þá næstu!
Við bjóðum þér að vera með í hreyfingunni! Þú getur lagt þitt af mörkum fyrir þá “NÆSTU” einfaldlega með því að ýta á hlekkinn hér að neðan eða nota eitt af “NÆSTU” umslögunum okkar.
Saman, getum við verið hvatning fyrir þá næstu til að þekkja Hann!












